Þrátt fyrir að nú eigi að teljast hásumar er ekki seinna vænna fyrir vetraríþróttafólk að hefja æfingar fyrir næstu kuldatíð, en Skíðasamband Íslands stóð fyrir æfingabúðum fyrir unglinga og landsliðsmenn í skíðagöngu um síðustu helgi á Ísafirði og nágrenni.
Nýr landsliðsþjálfari, Norðmaðurinn Jostein Hestmann stjórnaði æfingunni en þjálfari Ísfirðinga Steven P. Gromatka var honum innan handar.
Mjög góð þátttaka var í búðunum en 16 manns tóku þátt, þar með taldir báðir A-landsliðsmenn SKÍ þeir Brynjar Leó Kristinsson og Sævar Birgisson. Veður lék við hópinn þennan tíma sem nýtti sér það og fór á fjölbreyttar æfingar.
Meðal annars var gengið á hjólaskíðum á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur, hlaupið var með stafi upp Hrafnseyrarheiði og út Súgandafjörð ásamt hjólaskíðum á Flateyri og þrekþjálfun í fjörunni í Holti. Þátttakendur voru allir sammála um að einkar vel hafi tekist til og þeir skemmt sér vel og æft mikið, en nokkrar myndir má sjá efst í fréttinni.