Sjöström bætti heimsmetið

Sarah Sjöström, til hægri.
Sarah Sjöström, til hægri. AFP

Sarah Sjöström frá Svíþjóð setti í kvöld nýtt heimsmet í 100 metra flugsundi á heimsmeistaramótinu í sundi sem nú stendur yfir í Kazan í Rússlandi.

Sjöström kom í mark á tímanum 55,74 sekúndum í undanúrslitunum og bætti met Dana Vollmer frá Bandaríkjunum sem hún setti á Ólympíuleikunum í London 2012 þegar hún synti vegalengdina á 55,98 sekúndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert