Mayweather ætlar að hætta ósigraður

Floyd Mayweather er ósigraður í 48 viðureignum.
Floyd Mayweather er ósigraður í 48 viðureignum. AFP

Hnefaleikakappinn Floyd Mayweather mun snúa aftur í hringinn þann 12. september næstkomandi og mæta Andre Berto, en Mayweather er ósigraður í 49 viðureignum.

Fari svo að Mayweather hafi betur mun hann jafna met Rocky Marciano sem tapaði ekki í 49 viðureignum og fór ósigraður í gegnum ferilinn, en hinn 38 ára gamli Mayweather hefur sagt að þetta verði í síðasta sinn sem hann stígur í hringinn.

„Hann er ungur og sterkur boxari sem er hungraður að ná þeim besta. 48 hafa reynt það hingað til og þann 12. september mun hinum 49. mistakast það,“ sagði Mayweather.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert