Sigrar til skiptis í Neskaupstað

Frá leik karlaliða Þróttar og KA í Neskaupstað í gær.
Frá leik karlaliða Þróttar og KA í Neskaupstað í gær. Ljósmynd/Jón Guðmundsson

Þróttur frá Neskaupstað og KA mættust bæði á Íslandsmóti karla og kvenna í blaki í Neskaupstað í gær og skiptu sigrunum bróðurlega á milli sín.

KA vann viðureign karlaliðanna 3:0 þar sem hrinurnar enduðu 25:20, 25:19 og 25:21, Akureyrarliðinu í vil.

Þróttur sigraði hinsvegar í kvennaleiknum 3:0 og þar enduðu hrinurnar 25:12, 25:13 og 25:11, eða með talsverðum yfirburðum Austfirðinganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert