Ynjur Skautafélags Akureyrar gerðu góða ferð í höfuðborgina í gærkvöld þegar þær unnu stórsigur á Birninum, 8:1, í Egilshöllinni á Íslandsmóti kvenna í íshokkí.
Ynjur eru þá með 17 stig eftir sjö leiki en Ásynjur eru með 16 stig eftir sex leiki. Björninn er með 6 stig eftir átta leiki og SR er án stiga eftir fimm leiki.
Silvía Björgvinsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Ynjur og átti 4 stoðsendingar. Sunna Björgvinsdóttir skoraði 4 mörk, Teresa Snorradóttir og Harpa Benediktsdóttir eitt hvor en Nanna Baldursdóttir skoraði fyrir Björninn.