Tennisstjarnan Caroline Wozniacki verður fánaberi Dana á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar ef marka má Twitter reikning hennar.
Wozniacki segir frá þessu á Twitter og segir draum vera að rætast.
Wozniacki er 25 ára gömul og komst um tíma í efsta sæti heimslistans í tennis en er nú í 17. sæti listans. Wozniacki hefur ekki ennþá unnið risamót í tennis en hefur tvívegis farið alla leið í úrslitaleik Opna bandaríska mótsins.
Aðeins tvær konur hafa verið fánaberar fyrir Dani í sögunni. Árið 1976 í Montréal var það ræðarinn Judith Andersen og árið 1988 í Seoul var það hestakonan Anne Grethe.
Such a dream come true!! Was chosen to be the Danish flag bearer at the opening ceremony at the Rio Olympics! 😃😃 pic.twitter.com/mIfFj0pnPz
— Caroline Wozniacki (@CaroWozniacki) February 5, 2016