Manning og Broncos fögnuðu sigri

Peyton Manning eftir sigurinn í Super Bowl í nótt.
Peyton Manning eftir sigurinn í Super Bowl í nótt. AFP

Denver Broncos unnu Carolina Panthers í úrslitaleiknum um Ofurskálina, Super Bowl, í amerískum fótbolta í nótt, 24:10. leikurinn fór fram á Levi's-leikvanginum í San Francisco. Vörn Denver þótti hreint afbragð í leiknum og fundu liðsmenn Carolina Panthers nánast engar leiðir í gegnum hana. 

Staðan var lengi vel 16:10, en snertimark og tvö aukastig innsigluðu sigur Denver seint í leiknum. Sigurinn kom nokkuð á óvart þar sem Carolina Panthers höfðu leikið afar vel í undanfara leiksins. 

Margt bendir til að Peyton Manning, leikstjórnandi Denver, hafi leikið sinn síðasta leik á ferlinum. Manning, sem er að verða fertugur, ætlar sér að rifa seglin. Beðið er formlegrar staðfestingar í þeim efnum. Manning varð einnig meistari með Indianapolis Colts fyrir um áratug. 

Denver Broncos urðu síðast meistarar fyrir 18 árum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert