Irina og Jón Sigurður Íslandsmeistarar

Mynd af sigurvegurum dagsins.
Mynd af sigurvegurum dagsins. mbl.is / Árni Sæberg

Fyrri keppnisdegur á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum fór fram í dag. Keppt til verðlauna í fjölþraut í dag, en á morgun verða Íslandsmeistarar krýndir á einstökum áhöldum. 

Íslandsmeistari kvenna varð Irina Sazanova, Ármanni, en hún sigraði með nokkrum yfirburðum með 52.300 stig. Í öðru sæti var Dominiqua Belányi einnig úr Ármanni með 50.450 stig. Í þriðja sæti varð Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir, Björk, með 49.950 Stig. 

Írina er á lokastigum undirbúnings fyrir forkeppni Ólympíuleikanna í Ríó 2016 en þar mun hún keppa um þátttökurétt á Ólympíuleikunum sem fram fara í ágúst á þessu ári. Árangur hennar er einstakur í íslenskri fimleikasögu og er hún fyrsta konan til að komast í undankeppnina.

Sérvalið lið aðstoðarfólks mun fylgja Irinu til Ríó; Vladimir Antonov þjálfari, Berglind Pétursdóttir sjúkraþjálfari og Hlín Bjarnadóttir dómari. Hópurinn leggur af stað til Ríó 12. Apríl en keppnisdagurinn er 16. apríl. Allt er lagt í sölurnar til að tryggja Íslandi sitt fyrsta sæti á Ólympíuleikum í áhaldafimleikum kvenna.

Íslandsmeistari karla varð Jón Sigurður Gunnarsson, Ármanni,  en hann sigraði nokkuð örugglega með 75.469 stig.  Í öðru sæti varð Hrannar Jónsson, Gerplu, með 70.402 stig.  Í þriðja sæti varð svo Hróbjartur Pálmar Hilmarsson, Gerplu, með 65.302 stig.

Í unglingaflokki kvenna sigraði Margrét Lea Kristinsdóttir, Björk og í unglingaflokki karla sigraði Jónas Ingi Þórisson.

Keppni heldur áfram á morgun þegar keppt verður á einstökum áhöldum og hefst kl. 13:00

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert