Irma og Ingi með forystu

Irma Gunnarsdóttir.
Irma Gunnarsdóttir. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Í dag fer fram seinni hlutinn af Meistaramóti Íslands í fjölþrautum á Selfossi. Að loknum fyrri degi er Irma Gunnarsdóttir, Breiðabliki, með forystu í sjöþraut kvenna með  2.850 stig, aðeins 8 stigum á undan Ásgerði Jönu Ágústsdóttur úr UFA sem er með 2.842 stig.

Í karlaflokki er Ingi Rúnar Kristinsson, Breiðabliki, fyrstur með 3.656 stig. 

Í flokki 16–17 ára pilta er Styrmir Dan Steinunnarson, HSK/Selfossi, fyrstur eftir fyrri dag með 3.103 stig. 

Í flokki pilta 18–19 ára pilta er Guðmundur Karl Úlfarsson, Ármanni, fyrstur með 3.380 stig, en á hæla honum er Gunnar Eyjólfsson UFA með 3.334 stig.

Í forystu í keppni stúlkna 16–17 ára er Sara Hlín Jóhannsdóttir, Breiðabliki, með 2.536 stig.

Ingi Rúnar Kristinsson.
Ingi Rúnar Kristinsson. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert