Penguins komnir með forystu

Evgeni Malkin, leikmaður Pittsburgh Penguins, og Brenden Dillon, leikmaður San …
Evgeni Malkin, leikmaður Pittsburgh Penguins, og Brenden Dillon, leikmaður San Jose Sharks, í harðri baráttu í leik liðanna í nótt. AFP

Pittsburgh Penguins eru komnir með 1:0 forystu í einvígi sínu við San Jose Sharks um Stanley-bikarinn í úrslitum NHL-deildarinar í íshokkí karla.

Pittsburgh Penguins hafði betur 3:2 í fyrsta leik liðanna í Consel Energy Center í nótt.

Nick Bonino, Bryan Rust og Conor Sheary skoruðu mörk Pittsburgh Penguins í leiknum, en Patrick Marleau og Tomas Hertl mörk San Jose Sharks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert