Stemmningin er gríðarleg fyrir utan leikvanginn Allianz Riviera í Nice þar sem leikur Íslands og Englands fer fram í kvöld. Íslenskir stuðningsmenn streyma nú að í þúsundatali og fer vel á með þeim og ensku stuðningsmönnunum.
Stuðningsmenn beggja liða reyna að syngja hverjir aðra í kaf og gefa hinir íslensku ekkert eftir, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.