Kaj Leo Holm Johannesen, þingmaður færeyska Sambandsflokksins og fyrrverandi lögmaður Færeyja, tók í fyrradag fram markmannshanskana og lék með varaliði HB í knattspyrnu.
Liðið lék á móti AB í 1. deildinni en markmaður og varamarkmaður þess voru fjarri góðu gamni. Kaj Leo, sem verður 52 ára í haust, lét sér ekki segja sér það tvisvar þegar hann var beðinn um að standa vaktina í fjarveru markvarðanna, en hann spilaði knattspyrnu á sínum yngri árum og var meðal annars í landsliði Færeyja.
Það verður að teljast tíðinda að hann skuli hafa verið kallaður til, orðinn þetta gamall, en báðir markverðir liðsins voru að spila með liðinu í Evrópukeppninni í Eistlandi á sama tíma, að því er fram kemur í færeyska netmiðlinum in.fo.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem leitað er til Kaj Leos. Hann leysti markverði liðsins síðast af í ágúst 2014 og hélt þá hreinu í 1:0 sigurleik HB.
Það sama var upp á teningnum í fyrradag. Kaj Leo stóð sig með prýði og hélt hreinu, en leikar enduðu 0:0.