Anita Wlodarczyk frá Póllandi sló í kvöld eigið heimsmet í sleggjukasti á móti í Varsjá í Póllandi.
Wlodarczyk þeytti sleggjunni 82,98 metra en hún varð ólympíumeistari í greininni í Ríó á dögunum og setti þá heimsmet með því að kasta sleggjunni 82,29 metra.