Stjarnan byrjaði á sigri

Stjarnan féll úr leik í undanúrslitum í Mizuno-deildinni á síðustu …
Stjarnan féll úr leik í undanúrslitum í Mizuno-deildinni á síðustu leiktíð. mbl.is/Golli

Stjarnan hóf keppnistímabil sitt í Mizuno-deild karla í blaki með 3:0 sigri á sameinuðu liði Þróttar R. og Fylkis í Garðabæ í gærkvöld.

Fyrstu tvær hrinurnar voru nokkuð jafnar en þær fóru 25:20 og 25:19. Stjarnan vann svo þriðju og þar með síðustu hrinuna af öryggi, 25:12.

Alexander Stefánsson var stigahæstur hjá Stjörnunni með 12 stig en Róbert Karl Hlöðversson var stigahæstur hjá Þrótti R./Fylki með 9 stig.

Stjarnan mætir næst Þrótti Neskaupstað fyrir austan á laugardag en Þróttur Nes. hefur unnið fyrstu tvo leiki sína. Lið Þróttar R./Fylkis mætir næst Aftureldingu þann 5. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert