Gunnar keppir ekki í Belfast

Gunnar átti að mæta Dong Hyun „Stun Gun“ Kim í …
Gunnar átti að mæta Dong Hyun „Stun Gun“ Kim í aðalbardaga kvöldsins þann 19. nóvember. Mynd/UFC

Gunnar Nelson mun ekki mæta Dong Hyun Kim í aðalbardaga UFC-kvöldsins í Belfast þann 19. nóvember eins og ráðgert hafði verið.

Vefsíðan MMA Fighting greindi frá þessu í kvöld og segir að ekkert verði af bardaganum vegna meiðsla Gunnars. Þess í stað muni þeir Gegard Mousasi og Uriah Hall mætast.

Ekki er ljóst hve alvarleg meiðsli Gunnars eru en UFC hefur ekki staðfest breytingarnar á bardagakvöldinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert