Aldís Edda Ingvarsdóttir vann til silfurverðlauna á Norðurlandsmótinu í skylmingum sem fram fer í Hróarskeldu í Danmörku um helgina.
Keppendur eru um 100 frá 11 þjóðum og er þetta eitt fjölmennasta Norðurlandamót frá upphafi en 23 íslenskir keppendur taka þátt í hinum ýmsu flokkum.
Ragnar Ingi Sigurðsson og Andri Mateev fengu brons í karla-flokknum. Íslendingarnir tóku fyrstu sætin í U13. Alexander Viðar varð Norðurlandameistari en hann sigraði félaga sinn Óskar Jarl Howser sem hlaut siflur verðlaun. Saman í þriðja sæti voru þeir Andrés Blær Oddsson og Jakob Kristmannsson.
Anna Margrét Ólafsdóttir varð Norðurlandameistari í U15 en hún sigraði úrslitaviðureignina 15:11. Mekkin Ingvarsdóttir keppti líka í þessum flokki en hún endaði í 6. sæti.
Haldin var liðakeppni U17 bæði í karla- og kvennaflokki. Ísland gerði sér lítið fyrir og sigraði í báðum flokkunum. Í U17 kvenna voru Þær Anna Margrét Ólafsdóttir, Mekkin Ingvarsdóttir og Freyja Sif Stefnisdóttir. Í U17 karla voru þeir Andri Mateev, Franklín Ernir Kristjánssoon, Hafþór Haugen og Hilmar Heiðdal.