Lét fjarlægja ört stækkandi fæðingarblett

Horton fagnar í Ríó í sumar. Fæðingarbletturinn sést ef vel …
Horton fagnar í Ríó í sumar. Fæðingarbletturinn sést ef vel er að gáð. AFP

Ólympíumeistarinn Mack Horton þakkaði aðdáanda sínum athyglina og telur að hann gæti hafa bjargað lífi hans.

Horton, sem er frá Ástralíu, varð ólympíumeistari í 400 metra skriðsundi í Ríó í sumar. Honum var bent á að hann væri með afbrigðilegan fæðingarblett á bringunni. Horton fór strax í aðgerð þar sem bletturinn var fjarlægður.

Horton greindi frá því að glöggur áhorfandi hefði fylgst með honum í sjónvarpsútsendingum frá Ríó og tekið eftir fæðingarblettinum. Viðkomandi hafði samband við lækni ástralska sundsambandsins en kom skilaboðunum áleiðis til Hortons.

„Ég verð að hrósa þeim sem hafði samband við liðslækninn og sagði að ég þyrfti að skoða fæðingarblettinn. Vel gert. Mjög vel gert,“ skrifaði Horton með mynd á Instagram-síðu sinni.

Myndir af Horton í gegnum tíðina benda til þess að fæðingarbletturinn hafi stækkað og orðið dekkri. Þykir það benda til þess að saklaus blettur hafi verið að breytast í húðkrabbamein á byrjunarstigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert