Enn gerir Ásgeir það gott í Þýskalandi

Ásgeir Sigurgeirsson stóð sig vel um helgina.
Ásgeir Sigurgeirsson stóð sig vel um helgina. mbl.is/Golli

Ásgeir Sigurgeirsson skotíþróttamaður var að ljúka keppni hjá liði sínu TSV Ötlingen í Þýskalandi. Þetta er önnur helgin á þessu keppnistímabili sem hann heldur utan til keppni með liði sínu í Bundesligunni þar í landi.

Ásgeiri gekk mjög vel um helgina. Í gær var skorið 388 stig en mótherjinn hans Aadreas Riedener skoraði 377 stig. Lið Ásgeirs keppti gegn SV Altheim Waldhausen og vann Ötlingen þá viðureign 3:2.

Rétt í þessu var svo að ljúka viðureign TSV Ötlingen við SSG Dynamit Furth. Ásgeir vann sína viðureign við Alessio Torracchi með mjög góðu skori, 386 stig á móti 377 stigum Alessio. Ötlingen tapaði hins vegar viðureigninni 4:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert