Margrét Jóhannsdóttir, Íslandsmeistari í einliðaleik, tók þátt í Alþjóðlega svissneska mótinu í badminton sem fór fram í Yverdon-les-Bains í Sviss um helgina.
Margrét lék gegn Emilie Aalestrup frá Danmörku og laut í lægra haldi fyrir henni 21:14 og 21:17. Með því lauk Margrét keppni í Sviss.
Næsta alþjóðlega mót sem Margrét tekur þátt í er Alþjóðlega norska mótið sem fer fram 17.-20. nóvember næstkomandi.