Ísland átti þrjá keppendur á fyrsta degi heimsmeistaramótsins í karate sem fer fram í Linz í Austurríki. Ekki náðu Íslendingarnir að hitta á rétt úrslit þrátt fyrir góða frammistöðu.
Elías Snorrason og Svana Katla Þorsteinsdóttir kepptu bæði í kata einstaklinga, þar sem Elías mætti Ramirez Luis Aros frá Síle og Svana Katla mætti Frederikke Bjerring frá Danmörku. Andstæðingar þeirra unnu og féll okkar fólk því út í fyrstu umferð.
Það sama átti við um Ólaf Engilbert Árnason sem mætti Fali Li frá Kína í fyrstu umferð í kumite -75 kg flokki, beið Ólafur lægri hlut 0:1. Andstæðingar Íslendinganna duttu svo út í seinni umferðum og því átti okkar fólk ekki rétt á uppreisnarglímu. Þess má geta að einstaklingsflokkarnir eru mjög fjölmennir og þarf sá sem keppir til sigurs í hverjum flokki að keppa í 7-8 viðureignum.
Á morgun mun Telma Rut Frímannsdóttir keppa í kumite -61 kg og hópkataliðið keppir líka.