Hafdís hefur lokið keppni á EM

Hafdís Pála Jónasdóttir og Arnar Davíð Jónsson
Hafdís Pála Jónasdóttir og Arnar Davíð Jónsson Ljósmynd/Keilusamband Íslands

Hafdís Pála Jónasdóttir úr KFR hefur lokið leik á EM í keilu sem fram fer í Olomouc í Tékklandi. Hún endaði í 34. sæti. 

Hafdís lék seinni 8 leikina í forkeppninni í gær. Hún var að loka betur en í fyrri 8 leikjunum en fékk þó nokkuð af erfiðum glennum og minna af fellum. Hún spilaði 1303 og 2622 í heildina sem gera 163,9 í meðaltal.

Baráttan á toppnum er hörð en þar er spilamennskan mjög góð. Efst er Maria Bulanova frá Rússlandi með 232.2 í mtl, í öðru sæti er Casja Wagner með 225,6 í mtl og í því þriðja er Nicole Sanders frá Hollandi með 222,4 í mtl.

Nú halda 16 efstu konurnar áfram keppni, leika 8 leiki til viðbótar og eftir það dettur helmingurinn út fyrir undanúrslit.

Arnar Davíð Jónsson úr KFR er í 10. sæti eftir fyrri hluta forkeppninnar sem leikinn var í gær. Arnar er með 225,1 í meðaltal og með góðri spilamennsku í dag tryggir hann sig inn í 16 manna úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert