Stjarnan ekki í vandræðum

Stjörnumenn eru á toppnum.
Stjörnumenn eru á toppnum. mbl.is/Golli
Stjarnan sigraði lið Þróttar R. og Fylkis, 3:0, í úrvalsdeild karla í blaki í Ásgarði í kvöld, eða með sömu tölum og þegar liðin mættust áður í desember. Hrinurnar fóru 25:18, 25:18 og 25:15. 
Stigahæstir í liði Stjörnunnar voru Michael Pelletier með 13 stig og Benedikt Rúnar Valtýsson og Kristófer Björn Ólason Proppé með 8 stig hvor. 
Í liði Þróttar R. og Fylkis var Sergej Diatlovic stigahæstur með 10 stig og á eftir honum Róbert Karl Hlöðversson með 9 stig.

Stjarnan er áfram á toppi deildarinnar og nú með 20 stig, fimm stigum meira en Þróttur frá Neskaupstað, en Þróttur/Fylkir er á botninum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert