Sturla féll úr leik

Sturla Snær Snorrason.
Sturla Snær Snorrason. Ljósmynd/SKÍ

Sturla Snær Snorrason lauk keppni á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í Sviss í dag. Hann tók þá þátt í aðalkeppninni í svigi. 

Því miður fyrir Sturlu náði hann ekki að klára fyrri ferðina og er hann því úr leik. Þátttöku Íslendinganna á mótinu er nú lokið og verður haldið heim á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert