Tillaga kjörnefndar um stjórn ÍF 2017 - 2019 var eftirfarandi:
Formaður: Þórður Árni Hjaltested
Varaformaður: Jóhann Arnarson
Aðrir í aðalstjórn: Halldór Sævar Guðbergsson, Matthildur Kristjánsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir.
Varastjórn: Jón Heiðar Jónsson, K. Linda Kristinsdóttir, Þór Jónsson.
Var ný stjórn Íþróttasambands fatlaðra samþykkt einróma af þinggestum. Að því loknu var Sveinn Áki Lúðvíksson formlega gerður að heiðursfélaga Íþróttasambands fatlaðra og er hann því aðeins annar núlifandi heiðursfélagi sambandsins. Þar með var ekki öllu lokið þar sem Sveinn Áki verður 70 ára 26. apríl næstkomandi var hann leystur út með gjöfum frá stjórn og starfsfólki sambandsins.