Irina með flott stökk

Irina Sazonova.
Irina Sazonova. mbl.is/Árni Sæberg

Irina Sazonova úr Ármanni hóf keppni í stökki og gerði sér lítið fyrir og sigraði þar, en hún varð meistari í fjölþraut í gær og byrjar svo sannarlega vel í keppni á einstökum áhöldum.

Irina fékk 12.950 stig en önnur varð Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir úr Björk með 12.800 stig.

Stúlkurnar fóru síðan yfir á tvíslá þar sem Dominiqua Alma Belányi úr Ármanni sigraði með glæsilegum æfingum. Irina gerði mistök þar, sem og Tinna Óðinsdóttir úr Björk. Dominiqua fékk 12.550 stig og Agnes Suto úr Gerplu 12.250 stig í annað sætið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert