Pogba ekki með vegna andláts föður síns

Paul Pogba missti föður sinn í gær.
Paul Pogba missti föður sinn í gær. AFP

Paul Pogba verður ekki með Manchester United gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun vegna andláts föður síns. Fassou Antoine Pogba var 79 ára þegar hann lést í gær eftir langa baráttu við veikindi.

Fassou Pogba fæddist í Gíneu en flutti til Frakklands er hann var þrítugur. Paul Pogba spilar fyrir franska landsliðið en bræður hans spila með landsliði Gíneu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert