Hin tvítuga Jeļena Ostapenko er komin í úrslit Opna franska meistaramótsins í tennis eftir sigur á Timea Bacsinszky. Hin lettneska Ostapenko hélt upp á 20 ára afmælið sitt í gær og hefur framganga hennar á mótinu komið mikið á óvart.
Í úrslitum mætir hún Simona Halep frá Rúmeníu sem hafði betur gegn Karolína Plíšková.
Í karlaflokki mætast þeir Stan Wawrinka frá Sviss og Rafael Nadal frá Spáni í úrslitum. Wawrinka hafði betur gegn Andy Murray og Nadal vann öruggan sigur á Dominic Thiem í dag.