„Ég dáist að henni“

Roger Federer.
Roger Federer. AFP

„Ég gekk ekki í gegnum þetta sjálfur þótt það væri eflaust frábær lífsreynsla,“ sagði svissneski tenniskappinn Roger Federer þegar hann var spurður hvort hann dáðist ekki að því að Victoria Azarenka hefði snúið aftur á völlinn, sex mánuðum eftir að hún fæddi barn.

„Hún gekk í gegnum allt annað en ég. Ég var bara þarna til staðar fyrir konuna mína,“ sagði Federer en hann og eiginkona hans, Mirka, eiga fjögur börn; tvö sett af tvíburum.

Honum hefur verið hrósað mikið fyrir að ná að halda sér í fremstu röð tennisleikara og að vera umhyggjusamur fjögurra barna faðir. 

Victoria Azarenka.
Victoria Azarenka. AFP

Hlutverk Federers öðruvísi

„Federer hefur ekki veitt mér neina hvatningu, en ég er ekki að reyna að móðga hann með þessu. Hann hefur staðið sig frábærlega en það sem hann gerir er örlítið öðruvísi,“ sagði Azarenka þegar hún var spurð hvort Federer hefði veitt henni innblástur.

„Ég dáist að henni og þykir það hálfótrúlegt að hún sé komin aftur út á völlinn. Ég dáist að hugrekki hennar,“ sagði Federer.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert