Öruggt hjá Sunnu - enn ósigruð

Sunna í bardaganum í nótt.
Sunna í bardaganum í nótt. Ljósmynd/Invicta

Sunna Rannveig Davíðsdóttir vann gríðarlega öruggan sigur á Kelly D'Angelo í blönduðum bardagalistum á Invicta FC 24-kvöldinu í Kansas í kvöld. Dómararnir dæmdu Sunnu 30:27-, 30:27- og 30:26-sigur.

Sunna náði D'Angelo nokkrum sinnum í gólfið og hafði mikla yfirburði og þá sérstaklega í annarri lotu. Hún hefur nú barist þrisvar sem atvinnumaður og unnið alla sína bardaga, en frammistaðan í kvöld var hennar besta á ferlinum. 

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is 

Sunna í beinni - mætir Kelly D'Angelo opna loka
kl. 55 Textalýsing Sunna vann öruggan sigur á Kelly D'Angelo
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert