Gunnar fékk 45 daga keppnisbann

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. AFP

Bardagakappinn Gunnar Nelson hefur fengið 45 daga keppnisbann eftir tapið gegn Santiago Ponzinibbio í UFC-bardaga þeirra á sunnudagskvöldið. Gunnar er meðal 11 bardagamanna sem fá keppnisbann eftir bardagakvöldið í Glasgow. Þetta kemur fram á vefnum mmafrettir.is.

Í frétt á vef mmafrettir.is segir:

Gunnar tapaði eftir rothögg gegn Santiago Ponzinibbio á sunnudagskvöldið. Bardagakvöldið fór fram í Skotlandi en ekkert íþróttasamband fyrir MMA er í Skotlandi. Því er það UFC sem sér um regluverk og annað utanumhald um dómara og lækna en ekki íþróttasamböndin eins og gengur og gerist á viðburðum í Bandaríkjunum og Brasilíu.

Í gær sendi UFC frá sér keppnisbönn í kjölfarið á læknisskoðun sem allir bardagamenn gengust undir eftir bardagana. Þar sem Gunnar var rotaður má hann ekki keppa næstu 45 daga en vitað var að Gunnar myndi taka sér frí frá öllum höfuðhöggum út sumarið á æfingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert