Bryndís fer ekki á EM

Bryndís Rún Hansen.
Bryndís Rún Hansen.

Bryndís Rún Hansen sundkona úr Óðni tekur ekki þátt í Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fer í Danmörku í desember en þar hafði hún unnið sér keppnisrétt ásamt sex öðrum íslenskum sundmönnum.

Bryndís glímdi við þrálát veikindi, sýkingar í ennis- og kinnholum, á síðasta keppnistímabili. Eftir að hafa farið í annars velheppnaða aðgerð á Akureyri í ágúst fékk hún sjálfkrafa loftbrjóst með tilheyrandi óþægindum.

Hún hefur smám saman verið að komast í sitt besta form. Bryndís stundar háskólanám á bandarísku eyjunni Havaí og keppti á sterku skólamóti í Texas um helgina. Þar kom í ljós að hún þarf að fara vel með sig til að ná fyrri styrk og læknar á Havaí ráðlögðu henni í kjölfarið að forðast langt flug og þá áreynslu sem fylgir því að keppa á EM.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert