Róbert varð heimsmeistari

Róbert Ísak Jónsson.
Róbert Ísak Jónsson. Ljósmynd/Íþróttasamband fatlaðra

Róbert Ísak Jónsson tryggði sér í nótt heimsmeistaratitilinn í 200m fjórsundi (S14, þroskahamlaðir) á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi sem nú stendur yfir í Mexíkó.

Róbert synti á 2:19.34 mínútum og hafði þar betur í baráttunni gegn Suður-Kóreumanninum Cho Wonsang. Wonsang var með forystuna eftir flug, bak og bringu en Róbert náði honum á síðasta snúning og stakk svo af á skriðsundskaflanum og vann glæsilegan sigur. Þetta eru önnur verðlaun Róberts á HM en hann vann til silfurverðlauna í 100m bringusundi.

Róbert Ísak Jónsson varð heimsmeistari í nótt.
Róbert Ísak Jónsson varð heimsmeistari í nótt. Ljósmynd/Íþróttasamband fatlaðra

Þá vann Sonja Sigurðardóttir til bronsverðlauna í 100m skriðsundi í flokki S4 (hreyfihamlaðir) en í hennar keppni voru bein úrslit og þrír keppendur. Sonja kom í bakkann á 2:34.77 mín.

Íslenski hópurinn hefur því unnið til fernra verðlauna til þessa á mótinu, eitt gull, eitt silfur og tvenn bronsverðlaun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert