Sunna vonarstjarna ársins

Sunna Rannveig Davíðsdóttir.
Sunna Rannveig Davíðsdóttir. Ljósmynd/Ásgeir Marteinsson

Bardagakonan Sunna Rannveig Davíðsdóttir var í gær valin vonarstjarna ársins að mati MMA Viking. Sunna barðist tvisvar á árinu og sigraði þær Mallory Martin og Kelly D'Angelo í blönduðum bardagalistum. Hún hefur nú barist þrisvar sem atvinnumaður og alltaf borið sigur úr býtum. 

Sunna ætlaði sér að berjast oftar á árinu en hún hefur verið frá vegna meiðsla að undanförnu. MMA Viking hefur veitt verðlaunin árlega frá 2012 og hlaut Gunnar Nelson verðlaunin í fyrsta skipti. Sunna var valin bardagakona ársins að mati vefjarins í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert