Axel og Haraldur meðal efstu manna

Axel Bóasson.
Axel Bóasson. Ljósmynd/gsimyndir.net

Kylfingarnir Axel Bóasson og Haraldur Franklín Magnús léku vel og voru meðal efstu manna á Reunion Intercollegiate háskólamótinu í golfi sem lauk í gærkvöld í Madison, Mississippi í Bandaríkjunum.

Axel sem keppir fyrir Mississippi state háskólann lauk keppni í 4. sæti í einstaklingskeppninni. Hann lék á samtals einu höggi yfir pari, en leiknir voru tveir 18 holu hringir. Lið Axels bar sigur úr býtum í liðakeppninni.

Haraldur lék hringina tvo á samtals tveimur höggum yfir pari og endaði í 7. sæti einstaklingskeppninnar, en keppendur voru 75. Haraldur leikur fyrir lið Louisiana, sem endaði í 9. sæti liðakeppninnar af 15 liðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert