Guðrún Brá fer best af stað

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. mbl.is/Eva Björk

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK fer best af stað í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í Leirdal í morgun. Hún lék fyrstu sex holurnar á einu höggi yfir pari vallarins.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR, Berglind Björnsdóttir úr GR og Íslandsmeistarinn Sunna Víðisdóttir úr GR eru á hælum hennar á tveimur höggum yfir pari og Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er á þremur höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert