Birgir Leifur Hafþórsson er í banastuði á Íslandsmótinu í golfi á Leirdalsvelli, en hann var að klára fyrri níu holurnar á öðrum hring í dag.
Birgir Leifur var efstur á fimm höggum undir pari eftir fyrsta hring í gær, en er nú samtals kominn á sjö undir eftir að hafa fengið tvo fugla í röð. Hann er með sex högga forskot á þá Þórð Rafn Gissurarson, Gísla Sveinbergsson og Sigmund Einar Másson sem allir eru á einu höggi undir pari.