Ragnhildur og Valdís enn jafnar

Valdís Þóra Jónsdóttir slær af teig í dag.
Valdís Þóra Jónsdóttir slær af teig í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Annar hringurinn á Íslandsmótinu í golfi er í fullum gangi, en í kvennaflokki eru efstu kylfingar komnir langt með fyrri níu holurnar.

Efstar og jafnar þegar þetta er skrifað eru þær Valdís Þóra Jónsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir, báðar á fimm höggum yfir pari. Valdís er búin með fyrri níu holurnar en Ragnhildur er búin með sjö.

Ríkjandi Íslandsmeistari Sunna Víðisdóttir er á tveimur höggum yfir pari í dag og samtals á ellefu höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert