Birgir Leifur náð fimm högga forskoti

Þórður Rafn Gissurarson er kominn upp í annað sætið, en …
Þórður Rafn Gissurarson er kominn upp í annað sætið, en hér slær hann á teig í gær. Styrmir Kári

Birgir Leifur Hafþórsson er með fimm högga forystu á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Leirdalsvelli, en í karlaflokki eru menn búnir að ljúka fyrri níu holunum.

Birgir Leifur hefur spilað öruggt golf í dag og fengið par á öllum holunum, en hann er samtals á átta höggum undir pari. Sigmundur Einar Másson sem var annar á fjórum undir fyrir hringinn hefur misst tvö högg og er á tveimur undir ásamt Axel Bóassyni og Kristjáni Þór Einarssyni, sem er á tveimur undir í dag.

Upp í annað sætið er hins vegar kominn Þórður Rafn Gissurarson, hann er á einu undir í dag og þremur undir samtals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert