Valdís Þóra með örugga forystu

Valdís Þóra á Garðavelli í dag.
Valdís Þóra á Garðavelli í dag. Ljósmynd/golf.is

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er með örugga forystu á sjötta stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi að loknum tveimur hringjum að þremur á mótinu.

Óhætt er að segja að veðrið hafi verið í stóru hlutverki í dag enda blés hressilega á kylfingana á Garðavelli í dag.

Valdís Þóra er með níu högga forystu en hún lék hringinn í dag á 74 höggum og er sem stendur á einu höggi yfir pari.

Jafnar í öðru sæti koma þær Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 10 höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert