Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili Mosfellsbæ fagnaði sigri á sjötta stigamótinu í Eimskipsmótraðarinnar í golfi sem lauk á Garðavelli á Akranesi í dag.
Kristján Þór leiddi mótið frá fyrsta hring en hart var sótt að honum á lokahringnum. Kristján Þór lék hringina þrjá á 213 höggum eða á 3 höggum undir pari.
Þetta er annar sigur Kristjáns á Eimskipsmótaröðinni þetta árið en fyrr í sumar tryggði hann sér Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni. Með sigrinum í dag styrkti Kristján Þór stöðu sína í efsta sæti stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur kom annar á 218 höggum. Stefán Már Stefánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðji í dag á 220 höggum.