Öruggur sigur hjá Valdísi Þóru

Valdís Þóra á Garðavelli.
Valdís Þóra á Garðavelli. Ljósmynd/golf.is

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni, sigraði í með yfirburðum í kvennaflokki á sjötta stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar, sem lauk á Garðavelli Akranesi í dag. 

Valdís Þóra lék heimavöllinn, Garðavöll, á 216 höggum eða á pari. Óhætt er að segja að sigur hennar var aldrei í hættu enda öruggur 10 högga sigur.

Í öðru sæti varð Ólafía Þórunn Kristinsdóttur úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 226 höggum eða 10 högg yfir pari. Þriðja varð Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja á 231 höggi eða 15 yfir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert