Gísli þriðji í Hollandi

Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson. Ljósmynd/gsimyndir.net

Gísli Sveinbergsson úr Keili hafnaði í þriðja sæti á opna hollenska áhugmannamótinu í golfi sem lauk í dag.

Gísli lék hringina fjóra á -3 samtals og var hann sex höggum á eftir sigurvegaranum. Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarnes varð níundi á +2 samtals og Ragnar Már Garðarsson úr GKG endaði í 20. sæti á á +7 samtals en hann var í þriðja sæti fyrir lokahringinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert