Tiger búinn að losa sig við þjálfarann

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur ákveðið að slíta samstarfið við golfþjálfarann Sean Foley.

Tiger greinir frá þessu á vef sínum í dag en þar segist hann ætla að gera sér góðan tíma að finna nýjan þjálfara.

Tiger hefur átt erfitt uppdráttar undanfarna mánuði en meiðsli í baki hafa plagað og hefur honum ekki tekist að ná fyrri styrk og hefur hann þurfti að hætta við að taka þátt í mótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert