Gísli í forystu á Jaðarsvelli

Gísli Sveinbergsson að leik.
Gísli Sveinbergsson að leik. Ljósmynd/gsimyndir.net

Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili er efstur eftir tvo hringi af þremur á Goðamótinu sem leikið er á Jaðarsvelli en mótinu lýkur á morgun. Goðamóti er það sjöunda og síðasta á Eimskipsmótaröð GSÍ.

Gísli lék í dag á 141 höggi eða á einu höggi undir pari. Fyrri hringinn lék hann á 70 höggum en þann síðari á 71 höggi. Jafnir í öðru til þriðja sæti, tveimur höggum á eftir Gísla, er þeir Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Hellu og Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili.

1. sæti                   Gísli Sveinbergsson        GK          70/71 = 141 -1

2.-3. sæti               Andri Már Óskarsson     GHR       70/73 = 143 +1

2.-3. sæti               Kristján Þór Einarsson   GKJ        73/70 = 143 +1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert