Kylfingurinn Andy Sullivan vann óvenjuleg verðlaun þegar honum tókst að ná draumahögginu á 15. braut á KLM-meistaramótinu í golfi sem fram fór í Hollandi.
Verðlaunin sem Sullivan hlaut er ferð út í geiminn með XCOR Aerospace fyrirtækinu.
„Ég er svo sem ekki viss um að ég fari í þetta óvenjulega ferðalag. Ég þarf að ræða við eiginkonuna um það,“ sagði Sullivan eftir mótið en hann varð í þriðja sætinu á mótinu.