Ferguson með hvatningaræðu fyrir Ryder-liðið

Sir Alex Ferguson.
Sir Alex Ferguson. AFP

Paul McGinley fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi hefur beðið Sir Alex Ferguson fyrrverandi knattspyrnustjóra Manchester United að flytja hvatningarræðu fyrir sína menn fyrir viðureignina gegn Bandaríkjamönnum sem fram fer um næstu helgi.

„Við höfum hist nokkrum sinnum á síðustu mánuðum en ég hitti hann fyrst fyrir 15 árum,“ sagði McGinley við fréttamenn en hann heldur með liði West Ham í enska fótboltanum.

„Ég veit að Ferguson er spenntur fyrir þessu. Hann er mikill aðdáandi golfs eins og við vitum. Hann þekkir Rory McIlroy mjög vel auðvitað þar sem Rory er mikill stuðningsmaður Manchester United,“ sagði McGinley.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert