Efsti maður heimslistans í golfi, Rory McIlroy, er í 2. - 3. sæti á Opna ástralska mótinu þegar leiknar hafa verið 36 holur af 72. McIlroy hefur leikið báða hringina á 69 höggum og er samtals á fjórum undir pari.
Ástralinn Greg Chalmers er efstur á samtals fimm undir en Ástralir eru í miklum meirihluta keppenda. Þeirra kunnasti kylfingur Adam Scott er á samatals tveimur undir pari.