Ólafía í ágætri stöðu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mbl.is/Styrmir Kári

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er í 45.-55. sæti en Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL er í 94.-98. sæti af 120 keppendum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi. Annar keppnisdagur mótsins í Marrakesh í Marokkó var í dag.

Ólafía lék á 74 höggum í dag, tveimur yfir pari vallarins, og er samtals á þremur yfir pari eftir tvo daga. Valdís lék á 76 höggum, fjórum yfir pari, og er samtals á átta höggum yfir pari.

Sextíu efstu eftir fjóra keppnisdaga komast á lokahringinn sem leikinn er á sunnudaginn en þar munu í kringum þrjátíu tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert