Verður Couples næsti fyrirliði?

Fred Couples
Fred Couples AFP

Bandaríska golfsambandið ætlar greinilega að gera allt til að stöðva sigurgöngu Evrópu í Ryder-keppninni í golfi. Evrópuúrvalið hefur nú sigrað á síðustu þremur mótum og það líkar Bandaríkjamönnum ekki vel.

Sambandið hefur sett á laggirnar nefnd sem á að finna bestu leiðina út úr þessum vanda, en eftir tap Bandaríkjanna í haust kom fram mikil gagnrýni á Tom Watson fyrirliða og er nokkuð ljóst að hann verður ekki áfram.

Ef marka má skrif ýmissa golfmiðla er talið líklegt að Fred Couples taki við keflinu, en hann hefur farið fyrir liðinu í Forsetabikarnum síðustu þrjú árin með góðum árangri. skuli@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert