Evrópumótaröðin komin til Katar

Justin Rose er kominn til Katar
Justin Rose er kominn til Katar AFP

Heimsmeistaramótið í handbolta er ekki eini stóri íþróttaviðburðurinn í Katar þessa dagana því Evrópumótaröðin í golfi er nú komin þangað og var fyrsti hringurinn spilaður í dag. Fjöldi þekktra kylfinga eru á meðal keppenda.

Oliver Fisher lék best í dag, var á 65 höggum sem er 7 högg undir pari. Af þekktum nöfnum má nefna Ernie Els sem var á 67, Stephen Gallacher 68, Justin Rose 68, Charl Schwartzel 69, Sergio Garcia 69, Henrik Stenson 70 og Jose Maria Olazabal á 73 höggum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert